Skip to content
ÓKEYPIS SENDING VIÐ KAUP YFIR 18.000 KR
14 DAGA SKILARÉTTUR
ÖRUGG GREIÐSLA
ÓKEYPIS SENDING VIÐ KAUP YFIR 18.000 KR
14 DAGA SKILARÉTTUR
ÖRUGG GREIÐSLA

Complete with

0

Your cart is empty

Continue shopping

Gold Dip - Press On Neglur

Sale price kr4,200
Hágæða vörur
Auðveld skil

Visa
Apple Pay
Maestro
Mastercard
Visa

Order now

Delivery before Monday, 24 Aug

Öruggar
Greiðsluleiðir

Endurgreiðslu
Ábyrgð

14-Daga
Skilafrestur

Leiðbeiningar fyrir press on neglur 💅🏻

Undirlag: Byrjaðu á því að klippa þínar náttúrulegu neglur í þægilega lengd svo þær passi vel undir gervineglurnar. 

Pússa neglurnar: Pússaðu neglurnar þínar vel og vandlega með litlu naglaþjölinni sem fylgir pakkanum, ef að þú vilt að neglurnar endist, ekki sleppa þessu skrefi! 

Naglaband: Notaðu naglabandaprikið og ýttu naglaböndunum niður, eins og þörf er á.

Finna réttar stærðir: Finndu þínar stærðir, mátaðu gervineglurnar á þínar og athugaðu hvaða stærðir henta þér best. Athugaðu að undir nöglunum getur þú séð stærðina á hverri nögl sem auðveldar þér að finna sömu stærðir fyrir hina hendina.

Sótthreinsa: Þegar að þú ert búin að pússa neglurnar, ýta naglaböndunum niður og finna rétta naglastærð sem hentar þér skaltu sótthreinsa hverja nögl vel með sótthreinsiklútnum sem fylgir í pakkanum.

Setja neglurnar á: Það eru tvær leiðir til þess að setja neglurnar á, ef að þú vilt fá stutta endingu (1-3 dagar) getur þú notað límmiðana sem fylgja í pakkanum. Ef að þú vilt fá lengri endingu (5-10+ dagar) getur þú notað fljótandi lím sem fylgir með.

Límmiðar: Byrjaðu á því að finna rétta stærð af límmiðum sem hentar þínum nöglum, settu límmiða á nöglina þína, fjarlægðu bakhliðina af límmiðunum og þrýstu nöglunum vel á. Ef að þú notar límmiðana getur þú fjarlægt neglurnar af og endurnýtt þær aftur. 

Fljótandi lím: Settu lím á þína náttúrulegu nögl og berðu aðeins innan í gervinöglina. Staðsettu gervinöglina upp við naglabandið þitt (Alls ekki ofan á naglabandið sjálft). Þegar að þú ert sátt með staðsetninguna á nöglinni þrýstu henni þá niður og haltu vel í 60-90 sek, mjög mikilvægt skref svo að ekkert loft myndist inn á milli. 

Hvað er innifalið í pakkanum? 

30Stk Neglur

Fljótandi lím

Límmiðapúðar

2Stk Sótthreinsiklútar

Naglabandaprik

Naglaþjöl

Leiðbeiningar

 

Við leggjum metnað í að afgreiða pantanir hratt og örugglega.

  • Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 á virkum degi eru sendar frá okkur sama dag.
  • Pantanir sem berast eftir kl. 11:00 eru sendar næsta virka dag.
  • Við sendum pantanir alla virka daga (mánudaga-föstudaga). Engar sendingar fara frá okkur um helgar eða á almennum frídögum.

  • Við sendum um allt land með Dropp og Póstinum. Viðskiptavinir geta valið þann sendingarmáta sem hentar þeim best þegar gengið er frá pöntun.

  • Þegar pöntun hefur verið afhent til Dropp eða Póstsins tekur við afhendingarferli viðkomandi flutningsaðila. Ef þú þarft upplýsingar um stöðu sendingarinnar eða afhendingu hennar mælum við með að hafa samband beint við Dropp eða Póstinn, þar sem þeir sjá um flutning og afhendingu pakkans.

  • Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi pöntunina þína áður en hún hefur verið afhent flutningsaðila er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur og við aðstoðum þig með ánægju.

  • Ef pakkinn þinn hefur ekki borist innan eðlilegs afhendingartíma skaltu endilega hafa samband við okkur. Við munum aðstoða þig og vinna málið áfram með Dropp eða Póstinum þar til lausn fæst.

Hafa samband: lashvana@lashvana.is

Sendingar

Við sendum pantanir alla virka daga (mánudaga til föstudaga). Flestar pantanir eru afgreiddar innan 1–2 virkra daga eftir að greiðsla hefur verið staðfest. Afhendingartími getur verið mismunandi eftir staðsetningu viðskiptavinar og flutningsaðila.

Skil

Hægt er að skila vörum innan 14 daga frá móttöku pöntunar. Til að skil verði samþykkt þarf varan að vera ónotuð, í góðu ástandi og í upprunalegum umbúðum.

Ekki er hægt að taka við skilum ef:
• Pakkningar hafa verið opnaðar
• Varan er ekki í upprunalegu ástandi
• upprunalegar umbúðir fylgja ekki

Við biðjum viðskiptavini að hafa samband við okkur áður en vara er send til baka svo hægt sé að aðstoða með ferlið.

Umsagnir viðskiptavina

Raunverulegar umsagnir frá viðskiptavinum

Frábær þjónusta og gordjöss augnhár ✨ Ég hef verslað mjög oft við þær hjá Lashvana og alltaf verið mjög ánægð.

— Ása Björg

Verified buyer

Bestu og auðveldustu augnhár sem ég hef prófað! Endingin amazing 🙌.. ég er klaufsk með allt sem viðkemur augnhárum og ásetningu en þessi eru svo auðveld að koma á sig! 10/10

— Sara Ósk

Verified buyer

Keypti lipstain í litnum caramel og ég sé sko ekki eftir því, ég ELSKA hann 😍 og nota daglega!

— Inga E

Verified buyer

Ég elska bleika kinnaliti og þessir eru báðir svo flottir - æðislegt að geta keypt þá í setti. Formúlan er svo kremuð og auðvelt að blanda þeim.

— Elísa

Verified buyer

Vá hvað þetta gerir mann frískandi og flotta 😍 er rosalega ánægð með þessa vöru.

— Kolbrún

Verified buyer

Þetta er án efa besta varaolía sem ég hef prófað!

— Hildur

Verified buyer

Fullkomnaðu útlitið

Fáðu enn betri útkomu með þessum vörum

Aria Augnhár

Aria Augnhár

kr2,995

Aria - Single Length Clusters

Aria - Single Length Clusters

kr2,690

Gold Dip - Press On Neglur
Gold Dip - Press On Neglur Sale price kr4,200