Skip to content

Cart

Your cart is empty

Article: Ending DIY augnhára

Ending DIY augnhára
5.04.2025

Ending DIY augnhára

Með réttri ásetningu eiga augnhárin að endast í allt að 5-10 daga! Hér að neðan ætla ég að fara yfir nokkur góð ráð sem við mælum með að þú farir eftir svo augnhárin haldist sem lengst á þér!

Nr 1. Lím á augnhárabútinn

Við mælum með því að setja örlítið lím á augnhárabútinn sjálfan, raða augnhárunum svo aðeins yfir hvort annað. Augnhárin tengjast þá betur saman og endingin verður betri!

Nr 2. Klemma vel saman

Þegar öll augnhárin eru komin á, notaðu þá augnháratöngina og klemmdu þeim vel saman við þín náttúrulegu augnhár, ef þú vilt fá góða endingu, ekki sleppa þessu skrefi! 

Nr 3. Sealer á augnháratöngina

Þegar öll augnhárin eru komin á og þú ert orðin sátt/ur, berðu þá sealer/festir inn í augnháratöngina og klemmdu augnhárin vel saman, með þessu skrefi ertu að festa þau vel bæði að ofan og neðan og endingin verður mun betri! 

Nr 4. Ekki fikta í augnhárunum

Þegar augnhárin eru á er mikilvægt að forðast það að tosa, pikka eða nudda augun. Á puttunum getur verið fita & óhreinindi sem brýtur upp límið og endingin verður styttri. Einnig með því að vera að fikta, tosa í augnhárin gætir þú kippt þínum náttúrulegu augnhárum með og við viljum það alls ekki. 

Nr. 5. Sturtuferðir

Aughárin mega blotna 24klst eftir ásetningu en mikilvægt er að láta einungis volgt vatn renna á augnhárin þegar að þú skolar á þér andlitið.

Read more

Augnhára fjarlæging

Augnhára fjarlæging

Hér mun ég fara yfir það hvernig best er að fjarlægja augnhárin á öruggan, fljótlegan og þægilegan hátt! Fjarlægðu augnhárin af með Lashvana remover Lashvana remover-inn okkar inniheldur milda og g...

Read more